Heim arrow Líkamsrækt arrow Uppskriftir arrow Súpur
 

Innskráning
Notendanafn

Lykilorð

Muna eftir mér

Súpur  

Kjúklingasúpa (fyrir 4)

Hráefni:
  • 4. kjúklingabringur
  • 3 hvítlauksrif, fínt söxuð
  • 1 rauður chili-pipar, fínt saxaður
  • 10 g rifin fersk engiferrót
  • 3 gulrætur, rifnar niður
  • 2 epli, rifin niður
  • 1 laukur, smátt saxaður
  • 2 msk . olía
  • 1 msk sterkt karrí
  • 2 l kjúklingasoð (vatn og teningar ef ekki er til annað soð)
  • 2-3 dl matreiðslurjóma
  • 3 msk ferskur kóríander, fínt saxaður

    Aðferð:

  1. Skerið kjúklingabringurnar í bita og steikið þær í smá olíu á pönnu og kryddið með sjávarsalti og pipar.
  2. Setjið olíu í pott og steikið hvítlauk, chili-pipar, engiferrót, gulrætur, epli og  lauk út í.
  3. Kryddið með karrí og  bætið síðan kjúklingasoðinu saman við.
  4. Látið sjóða i 10 mínútur.
  5. Maukið súpuna með töfrasprota og bætið síðan matreiðslurjómanum út í.
  6. Bragðbætið með salti og pipar.
  7. Að lokum eru kjúklingabitarnir settir út í súpuna og fersku kóríander stráð yfir.
  8. Berið  súpuna fram með grófu brauði.

     

Í hverjum skammti eru um 330 hitaeiningar og ríkulegt magn af A- og C- vítamíni.

 


Grænmetis sataysúpa (fyrir 4)

Hráefni:

  • 250 g sætar kartöflur
  • 2 gulrætur
  • 1 líter vatn
  • 2-3 tsk plantaforce
  • nýmalaður pipar og salt
  • 100 g blómkál
  • 40 g hvítkál
  • 40 g spergilkál (broccoli)
  • 20 – 40 g blaðlaukur 
  • Eða 200 g af grænmeti fersku eða frosnu að eigin vali
  • 2 hvítlauksrif
  • 3-4 tómatar
  • 1 dós sataysósa, t.d frá Thai choice (290 ml)

Aðferð:
    1. Flysjið kartöflurnar og skafið gulræturnar
    2. Skerið hvorttveggja í teninga, setjið í pott ásamt vatni og plantaforce
    3. Kryddið með pipar og salti, sjóðið síðan í 10-12 mínútur
    4. Bætið síðan grænmetinu í pottinn og sjóðið í 10 mínútur
    5. Skerið tómatana í bita og setjið þá út í
    6. Hrærið sataysósunni saman við og látið malla í 4-5 mínútur eftir að suðan kemur upp
    7. Smakkið og bragðbætið eftir þörfum með pipar og salti
    8. Súpan er betri eftir því sem hún fær að malla meira

Berið súpuna fram með góðu grófu brauði

Í hverjum skammti eru 250 hitaeiningar og ríkulegt magn af A- og C- vítamíni

 


Frönsk lauksúpa (fyrir 4)

Hráefni:

  • 400-500 g laukur
  • 1 msk. olía
  • 1 l kjötsoð eða vatn og súputeningur
  • pipar
  • chilliduft á hnífsoddi
  • 100-150 g brauðostur 17 %
  • 4-6 stk ristaðar franskbrauðsneiðar
  • 1 grein steinselja

Aðferð:

  1. Hreinsið og brytjið laukinn jafnt og smátt. Hitið hann í olíunni þangað til hann verður gulbrúnn ( má alls ekki brenna)
  2. Bætið 1-2 msk af vatni á laukinn ef hann vill festast við
  3. Setjið laukinn út í soðið og sjóðið við vægan hita í ½ -1 klst. Kryddið með salti og chillidufti. Gott er að sjóða steinseljugrein með í súpunni
  4. Rífið ostinn og ristið brauðsneiðarnar eins margar og hægt er að raða ofaná súpuskálina/pottinn. Raðið þeim ofan á og þekið með rifna ostinum
  5. Bakið strax í 250 CR  heitum ofni eða undir grilli þangað til osturinn er bráðnaður og myndast hefur gulbrún ostaskorpa yfir alla skálina. Yfirborð skálarinnar á að vera fyrir ofan miðjan ofn þegar þið bræðið ostinn

    Í hverjum skammti eru 290 hitaeiningar og ríkulegt magn af steinefnum.

Berið fram með brauði.


Blómkálssúpa (fyrir 4)

Hráefni:
  • 7 ½ dl vat
  • 1 grænmetisteningur
  • 1/3 dós sveppaostur
  • 400-500 g blómkál
  • steinseljugrein
  • salt og pipar

Aðferð:
  1. Hitið saman í potti vatn og grænmetistening
  2. Skolið blómkálið og brytjið það niður
  3. Hrærið smurostinum saman við soðið
  4. Bætið blómkálinu út í og sjóðið þar til það er orðið meyrt
  5. klippið steinselju yfir, saltið og piprið

    Í hverjum skammti eru innan við 100 hitaeiningar og ríkulegt magn af C-vítamíni og fólasín.

Berið fram með brauði.

 


Mexíkósk súpa (fyrir4)

Hráefni:
  • 2 laukar
  • 2 hvítlauksrif
  • ½  flaska granini tómatsafi
  • 3 dl kjúklingakraftur
  • 3 dl kjöt-/grænmetiskraftur
  • 2 súputeningar
  • 1 tsk worchestersósa
  • 1 dósir niðursoðnir tómatar
  • ¼  rauður chillipipar
  • ¼  tsk kóriander
  • ¼  tsk chillikrydd
  • ¼ tsk cayennepipar
  • 2-3 kjúklingabringur (skinnlausar)
    Aðferð:
    1. Skerið niður lauk og hvítlauk og mýkið á pönnu.
    2. Setjið allt hráefnið nema kjúklinginn í pott og sjóðið við vægan hita í u.þ.b. 20 mín. Því lengur sem súpan sýður, þeim mun betri verður hún.
    3. Skerið bringurnar í bita og steikið á pönnu.
    4. Setjið kjúklinginn síðan út í súpuna og látið krauma við vægan hita í u.þ.b. 20 mín.

      Í hverjum skammti eru  175 hitaeiningar án meðlætis 340 með og ríkulegt magn af C-vítamíni og steinefnum.

    Meðlæti:
    • Sýrður rjómi
    • Rifinn ostur 17 %
    • Dorritos snakk
    • Guacamole

    Meðlætið sett út í súpuna (hver og einn setur fyrir sig), gott að hafa brauð með.


     

    Fiskisúpa(fyrir 4)

    Hráefni:

    • 1 gulrót
    • 1 blaðlaukur
    • 1 steinseljurót
    • 2 stilkar sellerí
    • 1 hvítlauksrif , pressað
    • 1 msk. smjör
    • 1 1/2 l. fiskisoð(vatn og teningar)
    • 1/2 tsk. salt
    • 1/2 tsk. pipar
    • 600 g þorskflak
    • 2 dl kaffirjómi
    • 50 g rækjur
    • 50 g surimi (krabbakjöt, fæst í frystiborðum)
    • 20 g dill

    Aðferð:

    1. Skerið allt grænmeti smátt niður og léttsteikið það í smjöri, ásamt hvítlauk.

    2. Bætið fiskisopinu saman við.

    3. Þegar súpan er orðin vel heit er rjómanum bætt saman við og síðan þorskinum sem hefur verið roðflettur, hreinsaður og skorinn í bita.

    4. Bragðbætið með salti og pipar.

    5. Í lokin er rækjunum og surimi bætt saman við og súpan skreytt með dillinu.

     

    Hægt er að nota hvaða fisktegund sem er eftir smekk hvers og eins og eftir tilefninu.


    Gulrótasúpa (fyrir 4)   Prenta 

    Hráefni:

    • 2 msk. ólífuolía
    • 2 hvítlauksrif
    • 1 laukur
    • 2 sellerístönglar
    • 1 tsk engiferduft eða 1 msk ferskt
    • 2 msk hveiti
    • 12 dl kjúklingasoð (ten + vatn)
    • 400 g gulrætur
    • 1 tsk karrí
    • 1 tsk kúmínduft (cumin)
    • 1/2 tsk svartur pipar
    • 1 dl döðlur
    • 1 msk sítrónusafi
    • 1 dl AB-Mjólk eða súrmjólk

    Aðferð:

    1. Hitið olíuna í potti. Merjið hvítlauk, saxið lauk og sellerí og bætið út i ásamt rifnu engiferi. Hitið í 3-4 mínótur í olíunni og hrærið vel. Takið af hitanum og sáltrið hveitinu yfir.
    2. Hitið í tvær mínótur til viðbótar og hrærið stöðugt í pottinum. Hellið síðan kjúklingasoðinu út í og hrærið vel.
    3. Rífið gulrætur og bætið út í súpuna ásmt karríi, kúmíndufti og pipar, hleypið síðan upp suðunni.
    4. Lækkið hitann og látið sæupuna malla í tíu mínótur. Bætið söxuðum döðlum út í og látið malla áfram í fimm mínótur.
    5. Hellið súpunni í matvinnsluvél og maukið. Hellið síðan í pottinn aftur og bætið sítrónusafanum við og látið malla.
    6. Ausið súpunni á diska. Setjið 1 msk. AB-mjólk eða súrmjólk á hvern disk, má líka skreita með steinselju.

    Í hverjum skammti eru um 250 htiaeiningar og rikulegt magn af trefjum og A-vítamíni.

    Gott er að bera súpuna fram með grófu brauði og kotasælu.


    fotur