Hafðu samband

Heimilisfang: Lágmúli 9, 105 Reykjavík Sími: 581-3730 Netfang: [email protected]

+354-581-3730

[email protected]

Póstur 1- 2024

Velkomnar á  TT námskeiðið.

Þær sem koma á TT námskeið eiga það sameiginlegt að vilja léttast og það er hjálplegt að vera í hópi þar sem allar eru með sama markmiði.

 
 
TT markmið er 300 gr á viku.

TT aðferðafræðin fjallar um það hvernig hver og ein nær tökum á og getur stjórnað sínu holdafari. Það að fitna er ekki eitthvað skrýtið eða óeðlilegt, heldur er það fullkomlega eðlilegt. Það er okkur eiginlegt frá náttúrunnar hendi að ef við fáum meiri næringu en við höfum not fyrir í styttri eða lengri tíma þá fitnum við. Það er enginn vandi að fitna, það geta það allir sem eru heilbrigðir!

Að fitna er þess vegna ekki galli heldur hæfileiki!

Þessi hæfileiki hefur hjálpað okkur að ganga þessa jörð öldum saman við misjafnar aðstæður til fæðuöflunar. Þessi hæfileiki að geyma orku utan á okkur þegar vel aflaðist til að nota þegar minna var til, var og er okkar bjargvættur sem og öllum öðrum spendýrum jarðar. En þessi hæfileiki virkar sem sé í báðar áttir, ef líkaminn fær ekki nóg, þá tekur hann af forðanum, ef hann fær of mikið þá geymir hann. Og þarna höfum við fundið stýritækið!!

Þú verður sjálf að vera við stýrið!!

Frábært þá vitum við það, líkaminn kann líka að fara í forðann, en það gerir hann ekki nema hann hafi  þörf fyrir það og til að skapa þörf þurfum við í einhvern tíma að takmarka inntakið og auka brennsluna til að hann neyðist til að fara í forðann til að fá nóg. Í stóru myndinni er aðeins ein leið til að minnka fituforða líkamans og hún er að inntaka minni orku en við notum í minnst 7 daga í röð. Hvaða aðferð við beitum eða hvað kúrinn heitir skiptir í raun ekki máli. Staðreyndin er alltaf sú sama fyrir þyngdartap, orka inn og orka út. Að sjálfsögðu veljum við samt hreina og holla fæðu heilsunnar vegna. Ég veit að margir pirra sig á þessu og vilja trúa því að hitaeiningar skipti ekki máli, heldur muni hreint og lífrænt mataræði, það sem við köllum hollt og gott leiða til þess að líkaminn losi sig við umfram fitu. En því miður er það ekki alveg svo einfalt. Við fitnum líka af hollum og góðum mat ef við borðum of mikið af honum. Sú fita sem líkaminn er búinn að safna fer ekki nema hann hafi not fyrir hana. Sem sagt, við verðum að nýta það sem við höfum safnað á okkur og það gerum við með því að takmarka inntakið um tíma og auka brennsluna (hreyfingu) svo að líkaminn verði að taka af forðanum til að fá nóg.

Hvað er nóg?

Miðað við okkar lifnaðarhætti í dag er talið að grunn þörf kvenna sé um 2000-2300 orkueiningar (He) á dag. Til að líkaminn fari í forðann þarf því að fara undir 2000he á dag 1600-1800 he hefur reynst okkur vel hér á TT námskeiðinu.

Þú ert sjálf við stýrið enginn getur stjórnað þínu holdafari nema þú !

Fiskur, kjöt, grænmeti, baunir, gróft brauð, hnetur, möndlur, smjör ,olivolia, skyr, mjólk er holl og góð fæða með öllum þeim efnum og vítamínum sem líkaminn þarfnast.

TT aðferðafræðin.

     

      • Hiteiningar stjórna holdafarinu, næring stjórnar heilsunni. Ef hitaeiningafjöldi er undir 2,000 á dag, eða undir 14,000 samanlagt eftir 7 daga, þá eru allar líkur á að þú léttist, hvort sem mataræðið er það sem við köllum hollt eða óhollt.

      • Það er hæfileiki en ekki galli að fitna. Þessari staðreynd er vert að gefa gaum. Meðan heilsan er í lagi þá mun líkaminn geyma það sem við neytum umfram þörf. Til að sporna við því þarf að taka léttan dag eftir þungan.

      • Markmið eru sett fyrir hverja 7 daga. Markmiðið fyrir hverja 7 daga er að léttast um 300 gr. Jafnvel þó að þú léttist meira en það einhverjar vikur þá er það bara bónus. TT markmiðið er alltaf 300 gr frá fyrstu vigt að lokadegi hvers námskeiðs. Fyrir 6 vikna námskeið er það 1,8 kg.

      • Sjö-daga reglan= Summa hitaeininga fyrir 7 daga í röð. Það er alltaf summa hitaeininganna hverja 7 daga í röð sem ræður því hvort þú náir tilætluðum árangri. Segjum að þú setjir þér það markmið að neyta u.þ.b. 1,600 he á dag. Svo kemur dagur þar sem þú bætir við þig 800 he. Þá verður þú að draga þessar 800 he frá morgundeginum og láta þá 800 he duga fyrir þann dag til að halda stefnunni á 11,200 he fyrir hverja 7 daga.

    Gullnu TT-reglurnar þrjár:

    1. Brosa, drekka vatn og hugsa grönn.

    Engin áætlun verður til án hugsunar. Settu þér markmið og beindu huga þínum og athygli að markmiði hverrar viku. Hugurinn er þitt sterkasta vopn. Þú hugsar grönn, þess vegna ertu ekki að maula snakk eða nammi hugsunarlaust yfir sjónvarpinu, í bílnum, eða í vinnunni, bara til að vera með. Þetta er óþarfi og vondur vani sem þú þarft að losna við. Drekktu vatn, samt ekki of mikið. Það er hægt að gera of mikið af því eins og öllu öðru. Þrjú til fjögur glös á dag er gott. Með jákvæðu hugarfari nærðu lengra. Hafðu gaman af verkefninu, trúðu á getu þína og njóttu þess að fá vilja þínum framgengt.

    2. Þú mátt aldrei neita þér um neitt.

    Það er mikill munur á því hvort þú neitar þér um eitthvað, eða vilt það ekki. Ekki hugsa þannig að þú sért að neita þér um nammi, eða aukabita. Það er árangursríkara að hugsa þannig að þú viljir þetta ekki núna. Þú átt eftir að finna hvað það er miklu léttara að taka þannig á málinu.

    3. Þú mátt aldrei gera neitt annað en það sem þú ert sátt við.

    Þú verður að vera fullkomlega sátt við það sem þú ákveður. Þú ert að borða létt og gott og sleppa óþarfa af því að þú vilt það, ekki af því að þú verðir að gera það. Finndu leið til að gera hafragrautinn góðan ef þér finnst hann ekki góður á hefðbundinn hátt (Þú getur t.d. haft hann hráan með ávöxtum ), eða fáðu þér grófa brauðsneið í staðinn.

    Verkefni og spurningar vikunnar:

    Lestu vel og lærðu hitaeiningablaðið – A4 glósur – sem er inná lokaða svæðinu ykkar.
    1. Hvað eru margar hitaeiningar í einni brauðsneið með smjörva og osti?
    2. Hvað eru margar hitaeiningar í 2 hrökkbrauðssneiðum með sama áleggi?
    3. Hvað eru margar hitaeiningar í lítilli dós af hreinu skyri?

    Markmið vikunnar:

       

        • Að vera undir 2,000 he á dag næstu 7 daga (11-12 þúsund hitaeiningar samtals).

        • Að mæta í ræktina 3x í vikunni.

        • Að lesa og læra vikupóstinn.

      Meltingarvandamál:

      Ef vandamál koma upp varðandi uppþembu og að losa illa frá sér, er svarið VATN og aftur VATN, 4-5 bolla af heitu vatni á dag. Eins má nota vatnsmelónu, heila melónu á einum til tveimur dögum. Agúrka er líka alveg frábær í þessu tilfelli og gott að skella í sig heilli gúrku (bara 50 he. ) Kíví er líka gott til að bjarga svona málum, borða þá tvö í einu. Til þess að losna við svona vandamál er best að venja sig á að drekka 3-4 glös af vatni á dag og borða grænmeti í flest mál. Það er hiteiningalítið en stútfullt af steinefnum og vítamínum.

      Mundu að þú ert að gera það sem þú vilt og það er svo gaman!
      Kær kveðja, Bár