Hafðu samband

Heimilisfang: Lágmúli 9, 105 Reykjavík Sími: 581-3730 Netfang: [email protected]

+354-581-3730

[email protected]

Póstur 1

Velkomin til leiks!

Póstur 1 námskeið 1

Velkomin til leiks!

Takk fyrir frábæran fund á laugardaginn og góða mætingu. Það var mikil og góð orka þarna sem gaf mér sterk fyrirheit um að námskeiðið muni fara einstaklega vel af stað. Ég fann líka mikinn vilja og metnað til að ná TT markmiðinu fyrir hverja viku.

Ég sé að margar eru komnar með vigtina vel niður eftir fyrstu vikuna sem er vel gert! Það kemur sér vel ef einhver önnur vika gefur ekki eins vel, því að við reiknum alltaf út frá fyrstu vigt. Ég fer yfir kortin ykkar í hverri viku og strika undir með rauðu ef markmið hefur ekki náðst en með grænu ef það hefur náðst. 

TT- hvatningarkerfið

Hvatningarkerfið okkar hefur gefist mjög vel og orðið til þess að bæta bæði mætingu og  árangur til mikilla muna. Það felst í eftirfarandi:

10% afsláttur:   

  • Þú ert alltaf með 10% afslátt þegar þú heldur áfram í TT.   
  • Auk þess geturðu unnið þér inn aukaafslátt með því að standast TT markmið hverrar viku.

TT markmið: 

  • Að léttast um 300 gr á viku – 1,8 kg á 6 vikum = 5% afsláttur  
  • Að mæta í 18 skipti á 6 vikna námskeiði = 5% afsláttur  
  • Tvöfalt markmið: 1,8 kg x 2 =3,6 kg = 5% afsláttur  

Hitaeiningar

Eins og við töluðum um á fundinum, þá verðum við að vita sitthvað um hitaeiningar til að geta stjórnað holdafarinu. Lærðu utan að upplýsingarnar á blaðinu sem þú fékkst á fundinum Glósur – Hitaeiningar.Það mun koma sér vel!Fyrir þær ykkar sem komust ekki á fundinn, þá eru þessar upplýsingar líka inni á lokaða svæðinu ykkar. Þarna er líka mikið magn upplýsinga um hitaeiningafjölda í 100 gr, eða einu stk., eða einu glasi af öllu mögulegu.

Meðan við erum í þessu verkefni eru 1,600 hitaeiningar á dag málið. Það hefur reynst okkur vel. Sjö daga regluna þarftu líka að tileinka þér.

TT fundurinn og aðferðafræðin

Í upphafi hvers námskeiðs er fundur þar sem við förum vel yfir TT- aðferðafræðina:

1. Hiteiningar stjórna holdafarinu, næring stjórnar heilsunni
Ef hitaeiningafjöldi er undir 2,000 á dag, eða undir 14,000 samanlagt eftir 7 daga, þá eru allar líkur á að þú léttist, hvort sem mataræðið er það sem við köllum hollt eða óhollt.

2. Það er hæfileiki en ekki galli að fitna
Þessari staðreynd er vert að gefa gaum. Meðan heilsan er í lagi þá mun líkaminn geyma það sem við neytum umfram þörf. Til að sporna við því þarf að taka léttan dag eftir þungan.

3. Markmið eru sett fyrir hverja 7 daga
Markmiðið fyrir hverja 7 daga er að léttast um 300 gr. Jafnvel þó að þú léttist meira en það einhverjar vikur þá er það bara bónus. TT markmiðið er alltaf 300 gr frá fyrstu vigt að lokadegi hvers námskeiðs. Fyrir 6 vikna námskeið er það 1,8 kg.

4. Sjö-daga reglan: Summa hitaeininga fyrir 7 daga í röð
Það er alltaf summa hitaeininganna hverja 7 daga í röð sem ræður því hvort þú náir tilætluðum árangri. Segjum að þú setjir þér það markmið að neyta u.þ.b. 1,600 he á dag. Svo kemur dagur þar sem þú bætir við þig 800 he. Þá verður þú að draga þessar 800 he frá morgundeginum og láta þá 800 he duga fyrir þann dag til að halda stefnunni á 11,200 he fyrir hverja 7 daga.

5. Gullnu TT-reglurnar þrjár:

1. Brosa, drekka vatn og hugsa grönn
Engin áætlun verður til án hugsunar. Settu þér markmið og beindu huga þínum og athygli að markmiði hverrar viku. Hugurinn er þitt sterkasta vopn. Þú hugsar grönn, þess vegna ertu ekki að maula snakk eða nammi hugsunarlaust yfir sjónvarpinu, í bílnum, eða í vinnunni, bara til að vera með. Þetta er óþarfi og vondur vani sem þú þarft að losna við. Drekktu vatn, samt ekki of mikið. Það er hægt að gera of mikið af því eins og öllu öðru. Þrjú til fjögur glös á dag er gott. Með jákvæðu hugarfari nærðu lengra. Hafðu gaman af verkefninu, trúðu á getu þína og njóttu þess að fá vilja þínum framgengt.

2. Þú mátt aldrei neita þér um neitt
Það er mikill munur á því hvort þú neitar þér um eitthvað, eða vilt það ekki. Ekki hugsa þannig að þú sért að neita þér um nammi, eða aukabita. Það er árangursríkara að hugsa þannig að þú viljir þetta ekki núna. Þú átt eftir að finna hvað það er miklu léttara að taka þannig á málinu.

3. Þú mátt aldrei gera neitt annað en það sem þú ert sátt við
Þú verður að vera fullkomlega sátt við það sem þú ákveður. Þú ert að borða létt og gott og sleppa óþarfa af því að þú vilt það, ekki af því að þú verðir að gera það. Finndu leið til að gera hafragrautinn góðan ef þér finnst hann ekki góður á hefðbundinn hátt (Þú getur t.d. haft hann hráan með ávöxtum ), eða fáðu þér grófa brauðsneið í staðinn.

Verkefni og spurningar vikunnar:

Lestu vel og lærðu hitaeiningablaðið – A4 glósur – sem þið fenguð á fundinum. Það er líka inni á lokaða svæðinu ykkar.
1. Hvað eru margar hitaeiningar í einni brauðsneið með smjörva og osti? 2. Hvað eru margar hitaeiningar í 2 hrökkbrauðssneiðum með sama áleggi? 3. Hvað eru margar hitaeiningar í lítilli dós af hreinu skyri?

Markmið vikunnar:

• Að vera undir 2,000 he á dag næstu 7 daga (11-12 þúsund hitaeiningar samtals).
• Að mæta í ræktina 3x í vikunni.
• Að lesa og læra vikupóstinn.

Meltingarvandamál:

Ef vandamál koma upp varðandi uppþembu og að losa illa frá sér, er svarið VATN og aftur VATN: 4-5 bollar af heitu vatni á dag. Eins má nota vatnsmelónu, heila melónu á einum til tveimur dögum. Agúrka er líka alveg frábær í þessu tilfelli og gott að skella í sig heilli gúrku (bara 50 he. ) Kíví er líka gott til að bjarga svona málum, borða þá tvö í einu. Til þess að losna við svona vandamál er best að venja sig á að drekka 3-4 glös af vatni á dag og borða grænmeti í flest mál. Það er hiteiningalítið en stútfullt af steinefnum og vítamínum.

Mundu að þú ert að gera það sem þú vilt og það er svo gaman!

Kær kveðja, Bára