Hafðu samband

Heimilisfang: Lágmúli 9, 105 Reykjavík Sími: 581-3730 Netfang: [email protected]

+354-581-3730

[email protected]

Póstur 3

Póstur 3

Náðirðu markmiði þínu fyrir síðustu viku? 

Ef sú er raunin, þá eru 9oo gr farin frá fyrstu tölu. Vel gert og til hamingju með það!

Núna erum við í fjórðu vikunni, þannig að samkvæmt áætlun er gott að miða við rúmt 1 kg. Mundu að líta á kortið þitt. Ég fer alltaf reglulega yfir kortin og strika undir með grænu ef allt er eftir áætlun, en með rauðu ef svo er ekki og í því tilfelli þarftu aðeins að skoða málið. Það getur verið erfitt að byrja og þá kann að vera einfaldlega nóg að setja sér það markmið að mæta í alla  tímana. Þannig er það stundum, en þá er bara um að gera að halda einbeitingunni, því að árangurinn mun skila sér!

Stjörnuljósin í fjórðu viku eru :

  • Anna Berglind         4,3 kg
  • Sigrún Þóra      3,7 kg
  • Anna M. Bjarnadóttir  3,6 kg
  • Thelma         3,6 kg
  • Helga Hermannsd.   3,6 kg
  • Anna María              3,4 kg
  • Freyja Bened. 3,0 kg

Til hamingju allar! Margar ykkar eru rétt við mörkin og nú þarf bara að rífa upp keppnisskapið. Þetta er vel hægt eins og þessar tölur sýna. Þið sem eruð í forustu núna passið að gefa ekkert eftir og halda þessum frábæra árangri. Úthaldið er aðalmálið núna!         

Hvatningarkerfið 

Hvatningarkerfið okkar sló rækilega í gegn síðastliðinn vetur og þess vegna er full ástæða til að beita því aftur.

Það virkar þannig að þú færð: 

  • 5% afslátt af næsta TT námskeiði ef þú hefur 18 mætingar á 6 vikna námskeiði
  • 5% afslátt af næsta TT námskeiði ef þú nærð TT markmiði (300 gr á viku) á 6 vikna námskeiði.
  • 5% afslátt af næsta TT námskeiði ef þú nærð tvöföldu TT markmiði (3,5 kg) á 6 vikna námskeiði

Svör við spurningum vikunnar:

1.  Tvö til þrjú hrökkbrauð fyrir eina brauðsneið.
2.  170 hitaeiningar í einu mjólkurglasi (eitt glas 2,5 dl)

3.  90 hitaeiningar í einu undanrennuglasi (2,5 dl)
4.  90 hitaeiningar í einu kókglasi (2,5 dl)

Nú rifjum við upp 7 daga regluna
Það er svo stutt bilið á milli þess að standa í stað og að léttast, eins og þú sérð á tölunum hér fyrir neðan: 

  • Ef þú ert undir 14 þúsund hitaeiningum 7 daga í röð, þá eru mestar líkur á að þú léttist. 
  • Ef þú ferð í 16 þúsund he, þá eru mestar líkur á að þú standir í stað. 
  • Ef þú ferð í 17-20 þúsund he, þá eru mestar líkur á að þú þyngist. 

7 daga reglan: Samanlagt hitaeiningamagn 7 daga í röð, ekki það sem þú gerir einn og einn dag, heldur 7 daga í röð. Sem sagt, taktu léttan dag eftir þungan, ekki geyma það og ætla að taka á því seinna, heldur skaltu alltaf skila til baka innan 7 daga, áður en líkaminn býr til nýtt aukakíló. Þannig kemst maður í gegnum allar veislur lífsins án þess að bera þær utan á sér um ókomna tíð!

7 dagar eru allt sem þarf til að léttast um 300 gr

Málið er að vera í núinu og standast þá áætlun að skila 300 gr frá fyrstu vigt á 7 daga fresti, því að það er hægt og er alls ekki svo lítið. Með því móti gætirðu t.d. náð 10,2 kg á tímabilinu frá september til maí! Þú verður að taka þátt. Ertu búin að mæta í 10 tíma frá því að þetta námskeið hófst? Ef ekki, reyndu þá að mæta oftar á komandi vikum, hvort sem það er í aðra TT tíma, Toppform, eða í tækjasalinn og mundu að láta merkja mætinguna á kortið þitt svo að þú náir 18 tíma lágmarksmætingu fyrir hvert 6 vikna námskeið.

Ofurfæða eða tískubóla.

Oft öðlast ýmsar fæðutegundir skyndifrægð eins og margar súperstjörnur nútímans gera. Í rauninni er það hið besta mál, því að allt er jákvætt sem eykur áhuga og skilning á hollustu og því sem næringarefni fæðunnar gera fyrir okkur. Þannig var t.d. túrmerik fyrst kynnt til sögunnar sem undraefni til að losa líkamann við bólgur og tilheyrandi vanlíðan og verki. Það reyndist rétt því að túrmerik er einmitt bólgueyðandi og gott að nota í heitu vatni sem te eða setja í hina ýmsu rétti við matreiðslu. Túrmerik er af sömu ætt og engifer sem við höfum haft lengri kynni af hér á landi og er ekki síður bólgueyðandi. Við þurfum hins vegar ekki alltaf að leita að ofurfæðu til fjarlægra landa.

Tökum nokkur dæmi:
Tómatar verðskulda sannarlega athygli súperstjarnanna vegna alls þess sem þeir hafa að geyma. Þeir eru ríkir af A , C og K vítamínum, ásamt kalíum. Þeir innihalda einnig þíamín (B1), níacín (B3), B-6 og magnesíum, fosfór, kopar og trefjar, að ógleymdu betakarótíni, því sama og er í gulrótum og er talið styrkja mótstöðuafl líkamans gegn frumubreytingum.
Grænkál er án vafa nærigarríkasta kálið. Það gefur okkur A, C og E vítamín, járn, kalk, magnesíum og fólínsýru. Gott er að rista það (bara blöðin) í ofni með smá olíu og salti og borða það sem snakk.
Sellerí er fullt af vítamínum og steinefnum og hjálpar til að lækka LDL ( vonda) kólestrólið og lækka blóðþrýsting, auk þess sem það er gott fyrir brennsluna og þar með frábært fyrir alla sem eru að megra sig (ca 10 he á stilk). Upplagt er að skera það í bita og nota sem snakk t.d. með vinberjum.
Möndlur eru frábær „ofurfæða“ og hafa góð áhrif á hjarta og æðakerfið. Þær eru fullar af andoxunarefnum (sem halda okkur unglegum), draga úr slæma kólestrólinu (LDL) og bæta það góða (HDL) og innihalda þar að auki prótein og trefjar og meira kalsíum en aðrar hnetur! Það er því full ástæða til að bæta þessum „súperstjörnum“ við matseðilinn, en hafa ber í huga að það eru 600 he í 100 gr af möndlum. Ég mæli samt með því að rista þær og smella yfir salatið, eða bara borða nokkrar á dag, 30 gr innihalda u.þ.b. 160 he.

Spurningar vikunnar:

1. Hvernig bætir maður á sig 5 kg á ári?
2. Hvað er fitandi?
3. Hvað eru margar hitaeiningar í heilli agúrku?

Markmið vikunnar:

1.  Að vera undir 14 þúsund hitaeiningum eftir 7 daga.
2.  Að lesa og læra vikupóstinn.
3.  Að mæta í ræktina 3x í vikunni.

Einbeiting, úthald og gleði!

Gangi þér vel,

Bára