Hafðu samband

Heimilisfang: Lágmúli 9, 105 Reykjavík Sími: 581-3730 Netfang: [email protected]

+354-581-3730

[email protected]

Póstur 4 námskeið 1

Náðirðu markmiðum þínum fyrir síðustu viku?

Ef þú ert að hefja 4. vikuna þína þá eru það 900 gr frá fyrstu vigt. Ég veit að margar eru með meira en þessi 300 gr sem TT markmiðið er fyrir hverja viku og að margar eru komnar með 1,5 -2,5 kg frá fyrstu vigt.

Er ekkert er að ganga?

Ef þú ert ekki búin að skila 900 gr frá fyrstu vigt, þá verður þú að skoða málið. Kannski var eitthvað sem truflaði þig í að hefjast handa, mæting undir væntingum, fjarvera út af veikindum, eða einhverjar aðrar ástæður. Það getur verið svolítið erfitt að byrja og þá er eins og tíminn hlaupi frá manni og stundum eru það næg byrjendaskref að mæta bara í tímana.

7 dagar eru allt sem þarf til að léttast um 300 gr

Málið er að vera í núinu og standast þá áætlun að skila 300 gr frá fyrstu vigt á 7 daga fresti, því að það er hægt og er alls ekki svo lítið. Með því móti gætirðu t.d. náð 10,2 kg á tímabilinu frá september til maí! Þú verður að taka þátt. Ertu búin að mæta í 10 tíma frá því að þetta námskeið hófst? Ef ekki, reyndu þá að mæta oftar á komandi vikum, hvort sem það er í aðra TT tíma, opna kerfið, eða í tækjasalinn og mundu að láta merkja mætinguna á kortið þitt svo að þú náir 18 tíma lágmarksmætingu fyrir hvert 6 vikna námskeið.

Svör við spurningum vikunnar:

1. Þú bætir á þig 5 kg á ári með því að neyta 100 he meira en þú þarft í 365 daga.
2. Allt sem er fram yfir orkuþörf er fitandi.
3. Í heilli agúrku eru 28 – 38 he.

TT aðferðafræðin

1. Hiteiningar stjórna holdafarinu, næring stjórnar heilsunni.
Ef hitaeiningafjöldi er undir 2,000 á dag, eða undir 14,000 samanlagt eftir 7 daga, þá eru allar líkur á að þú léttist, hvort sem mataræðið er það sem við köllum hollt eða óhollt.
2. Það er hæfileiki en ekki galli að fitna.
Þessari staðreynd er vert að gefa gaum. Meðan heilsan er í lagi þá mun líkaminn geyma það sem við neytum umfram þörf. Til að sporna við því þarf að taka léttan dag eftir þungan.
3. Markmið eru sett fyrir hverja 7 daga.
Markmiðið fyrir hverja 7 daga er að léttast um 300 gr. Jafnvel þó að þú léttist meira en það einhverjar vikur þá er það bara bónus. TT markmiðið er alltaf 300 gr frá fyrstu vigt að lokadegi hvers námskeiðs. Fyrir 6 vikna námskeið er það 1,8 kg.
4. Sjö-daga reglan: Summa hitaeininga fyrir 7 daga í röð.
Það er alltaf summa hitaeininganna hverja 7 daga í röð sem ræður því hvort þú náir tilætluðum árangri. Segjum að þú setjir þér það markmið að neyta u.þ.b. 1,600 he á dag. Svo kemur dagur þar sem þú bætir við þig 800 he. Þá verður þú að draga þessar 800 he frá morgundeginum og láta þá 800 he duga fyrir þann dag til að halda stefnunni á 11,200 he fyrir hverja 7 daga.

5. Gullnu TT-reglurnar þrjár:

1. Brosa, drekka vatn og hugsa grönn.
Engin áætlun verður til án hugsunar. Settu þér markmið og beindu huga þínum og athygli að markmiði hverrar viku. Hugurinn er þitt sterkasta vopn. Þú hugsar grönn, þess vegna ertu ekki að maula snakk eða nammi hugsunarlaust yfir sjónvarpinu, í bílnum, eða í vinnunni, bara til að vera með. Þetta er óþarfi og vondur vani sem þú þarft að losna við. Drekktu vatn, samt ekki of mikið. Það er hægt að gera of mikið af því eins og öllu öðru. Þrjú til fjögur glös á dag er gott. Með jákvæðu hugarfari nærðu lengra. Hafðu gaman af verkefninu, trúðu á getu þína og njóttu þess að fá vilja þínum framgengt.
2. Þú mátt aldrei neita þér um neitt.
Það er mikill munur á því hvort þú neitar þér um eitthvað, eða vilt það ekki. Ekki hugsa þannig að þú sért að neita þér um nammi, eða aukabita. Það er árangursríkara að hugsa þannig að þú viljir þetta ekki núna. Þú átt eftir að finna hvað það er miklu léttara að taka þannig á málinu.
3. Þú mátt aldrei gera neitt annað en það sem þú ert sátt við.
Þú verður að vera fullkomlega sátt við það sem þú ákveður. Þú ert að borða létt og gott og sleppa óþarfa af því að þú vilt það, ekki af því að þú verðir að gera það. Finndu leið til að gera hafragrautinn góðan ef þér finnst hann ekki góður á hefðbundinn hátt (Þú getur t.d. haft hann hráan með ávöxtum ), eða fáðu þér grófa brauðsneið í staðinn.

Meltingarvandamál

Ef vandamál koma upp varðandi uppþembu og að losa illa frá sér, er svarið VATN og aftur VATN: 4-5 bollar af heitu vatni á dag. Eins má nota vatnsmelónu, heila melónu á einum til tveimur dögum. Agúrka er líka alveg frábær í þessu tilfelli og gott að skella í sig heilli gúrku (bara 50 he). Kíví er líka gott til að bjarga svona málum, borða þá tvö í einu. Til þess að losna við svona vandamál er best að venja sig á að drekka 3 – 4 glös af vatni á dag og borða grænmeti í flest mál. Það er hiteiningalítið en stútfullt af steinefnum og vítamínum.

Verkefni og spurningar vikunnar:

Lestu vel og lærðu hitaeiningablaðið – A4 glósur – sem þið fenguð á fundinum. Það er líka inni á lokaða svæðinu ykkar.

1. Hvað eru margar hitaeiningar í einni brauðsneið með smjörva og osti?
2. Hvað eru margar hitaeiningar í 2 hrökkbrauðssneiðum með sama áleggi?
3. Hvað eru margar hitaeiningar í lítilli dós af hreinu skyri?

Markmið vikunnar:

• Að vera undir 2,000 he á dag næstu 7 daga (11-12 þúsund hitaeiningar samtals).
• Að mæta í ræktina 3x í vikunni.
• Að lesa og læra vikupóstinn.

Alls ekki gleyma að hafa gaman 😊
Kær kveðja,
Ykkar Bára