Hafðu samband

Heimilisfang: Lágmúli 9, 105 Reykjavík Sími: 581-3730 Netfang: [email protected]

+354-581-3730

[email protected]

Póstur 5

 Póstur 5 

Elsku frábæru konur, gerum þetta saman!

Ekki sleppa tökunum núna þótt ekki sé hægt að mæta í ræktina í stuttan tíma. Nú reynir á að halda staðfestu, borða rétt, hugsa rétt og vera fyrirmynd annarra. Oft er þörf en nú er heldur betur nauðsyn á að vera meðvitaður um hvað maður lætur ofan í sig og detta ekki í neinar sukkfreistingar. Þið eruð að sjálfsögðu ekki þar. Þið standið við stýrið pollrólegar og sterkar og komist í gegn um öldurótið án þess að skaðast! Ég hef fulla trú á ykkur! Námskeiðið er ekki búið og við tökum upp þráðinn um leið og við megum opna aftur. Á meðan verðum við í sambandi hér á síðunni okkar og ég hvet ykkur til að sýna staðfestu. Ekki glutra niður þeim frábæra árangri sem þið voruð búnar að ná! Enga panik, þetta verður allt í lagi. Við gerum þetta saman!

Svör við spurningum vikunnar:
1. Til að ná tvöföldu TT markmiði  fyrir 6 vikur = 3,6 kg.
2. Hafragrautur lækkar blóðfitu og blóðþrýsting.
3. Í hálfri melónu eru u.þ.b. 97 hitaeiningar.
4. Í bláberjum er mikið af andoxunarefnum sem verja líkamann fyrir sjúkdómum og ótímabærri öldrun.
5. Meðalorkuþörf kvenna hér á landi er 2,300 – 2,500 orkueiningar á dag. 6. Til að léttast á 7 dögum þarftu að fara samtals undir 14,000 hitaeiningar.

Staðan í dag
Förum nú aðeins yfir málin. Hvernig leið tíminn? Var hann langur – stuttur – leiðinlegur –skemmtilegur – erfiður? Var það rétt eða röng ákvörðun að fara á TT námskeið?

1. Náðirðu TT markmiðinu?
2. Mættir þú í tíma 3x í viku?
3. Finnur þú mun á holdafarinu?
4. Sjá aðrir mun á þér?
5. Líður þér betur líkamlega?
6. Líður þér betur andlega? Var gaman?
7. Fannst þér þú vera að fórna einhverju til að standast þetta plan?
8. Var þessum tíma vel varið?
9. Bætti þessi tími heilsuna þína að einhverju leyti?
10.Trúir þú að með því að halda svona áfram getir þú bætt heilsu þína, bæði líkamlega og andlega og þar með aukið lífsgæði þín?

Svona líður tíminn
Eitt er víst að tíminn líður hvort sem þú hefur varið honum á TT námskeiði eða ekki. Nákvæmlega sami tími væri liðinn. Eini munurinn er sá að nú geta flestar ef ekki allar sagt að þær séu betur á sig komnar en fyrir 5 vikum! Það er jákvætt. Verjum þeim tíma sem þarf til að halda okkar besta formi.

Spurningar vikunnar:
1. Hvað eru margar hitaeiningar í 100 gr af fiski, soðnum, eða bökuðum?
2. Hvað eru margar hitaeiningar í kjúklingabringu með engu skinni?
3. Hvað eru margar hitaeiningar í einni matskeið af 10% sýrðum rjóma?
4. Hvað eru margar hitaeiningar í einu sérbökuðu vínarbrauði?
5. Í hvaða ávaxtasultu er enginn viðbættur sykur?

Ertu að fara eftir TT matseðlinum?
Þarna eru frábærar uppskriftir sem bæði þú og aðrir í fjölskyldunni geta notið. Þær eru ekki flóknar, yfirleitt fyrir fjóra og gefa upp fjölda hitaeininga í hverjum skammti.

Samanlagt hitaeiningamagn 7 daga í röð.

Sjö daga reglan virkar alla ævi, bæði núna meðan á aðhaldi stendur og einnig þegar þú hefur náð þeim árangri sem þú stefnir að. Mundu að það skiptir ekki öllu hvað þú gerir einn og einn dag, heldur 7 daga í röð. Summa hitaeininga 7 daga í röð stjórnar því hvort þú stendur í stað, léttist, eða þyngist.
• Ef þú heldur þér undir 14 þúsund hitaeiningum 7 daga í röð eru mestar líkur á að þú léttist (1,600 – 1,700 hitaeiningar á dag)
• Ef þú ferð í 14 – 16 þúsund plús eru mestar líkur á að þú standir í stað (2,000 -2,300 hitaeiningar á dag)
• Ef þú ferð í 17-20 þúsund plús eru mestar líkur á að þú þyngist (2,600 – 3,000 hitaeiningar á dag)


Þú verður sem sagt að vera undir 14 þúsund hitaeiningum samtals eftir 7 daga ef þyngdartap á að eiga sér stað.

Það þarf hins vegar ekki alltaf að vera með sama móti.
Segjum að þú neytir 3,000 hitaeininga þrjá daga í röð, þá áttu bara 5,000 hitaeiningar eftir fyrir næstu 4 daga til að vera komin í 14,000 hitaeiningar sem er 2,000 hitaeiningar á dag og ætti það að sleppa til að standa í stað þá vikuna

Og þá er það bókhaldið

Náðirðu þér í aukaafslátt?

  • TT 6 vikur – einfalt markmið = 1,800 = 5% afsláttur.
  • Tvöfalt markmið  = 3,6 kg = 5% afsláttur.
  • 18 mætingar =  5% afsláttur.

Samtals getur þú unnið þér inn 15% afslátt af næsta námskeiði. Auk þess fá allar sem halda áfram 10% afslátt. Fullt hús er því 25% afsláttur!

Stjörnuljós vikunnar fá stórstjörnurnar:

Anna Berglind                           5,9 kg

Sigrún Þóra                                5,8 kg

Thelma                                        4,9 kg

Helga Hermannsdóttir              4,8 kg

Anna M. Bjarnadóttir                4,7 kg

Anna Lovísa                                4,2 kg

Berglind Valberg                       4,1 kg

Anna María                                3,9 kg

Una Hafdís                                  3,5 kg

Ása Rún                                       3,2 kg

Ellen Rut                                     3,1 kg

Ég má til með að minnast á þær Hólmfríði Marinósdóttur, sem er með 26,3 kg og Björk Óttarsdóttur, sem er með 26,2 kg frá því að þær byrjuðu fyrir „nokkrum“ TT námskeiðum síðan. Þær tvær eru svo sannarlega búnar að „fá sjálfar sig til baka“ Vel gert!

Þið flottu konur, til hamingju allar með ykkar frábæra árangur!

Verum bjartsýnar. Látum það ganga!

Ykkar Bára