Hafðu samband

Heimilisfang: Lágmúli 9, 105 Reykjavík Sími: 581-3730 Netfang: [email protected]

+354-581-3730

[email protected]

Póstur 5- námskeið 2

Náðirðu markmiðum síðustu viku?

Ég veit að þér finnst þessi spurning ekki sanngjörn miðað við ástandið á vandræða veirunni sem við öll erum búin að fá meira en nóg af og truflaði námskeiðið okkar í rúmar tvær vikur og það sem verra er að margar hafa ekki skilað sér aftur í tímana eftir opnun,en við lengdunm að sjálfsöðu námskeiðið um stoppið og nú vil ég gera enn betur og draga tvær vikur af greiðslunni á næsta 6 vikna námskeiðinu sem hefst 3 maí til 12 júni 30% afsl til allar sem eru núna og halda áfram =25.620.Höldum í jákvæðnina og gerum þetta saman !

Margar ykkar hafa þrátt fyrir þessa truflun haldið einbeitingunni í góðu lagi og náð frábærum árangri

Til hamingju með það!!

María Ósk————–10.1 kg

Birna Eggerts————5.9 kg

Eva Ægisd—————- 5.6kg

Hafdís Dögg————–5.4kg

Anna Lovísa————–5.0kg

Unnur Guðmunds——-4.2kg

Svör við spurningum vikunnar:  

1. Til að ná tvöföldu TT markmiði a) fyrir 6 vikur = 3,6 kg b) fyrir 28 vikur= 16.8 kg. 

2. Hafragrautur lækkar blóðfitu og blóðþrýsting.  

3. Í hálfri melónu eru u.þ.b. 97 hitaeiningar.  

4. Í bláberjum er mikið af andoxunarefnum sem verja líkamann fyrir sjúkdómum og ótímabærri öldrun.  

5. Meðalorkuþörf kvenna hér á landi er 2,300 – 2,500 orkueiningar á dag.  

6. Til að léttast á 7 dögum þarftu að fara samtals undir 14,000 hitaeiningar.  

Staðan í dag.  

Förum nú aðeins yfir málin. 

Hvernig leið tíminn? Var hann langur – stuttur – leiðinlegur –skemmtilegur – erfiður? Var það rétt eða röng ákvörðun að fara á TT námskeið?  

1. Náðirðu TT markmiðinu?  

2. Mættir þú í tíma 3x í viku?  

3. Finnur þú mun á holdafarinu?  

4. Sjá aðrir mun á þér?  

5. Líður þér betur líkamlega?  

6. Líður þér betur andlega? Var gaman?  

7. Fannst þér þú vera að fórna einhverju til að standast þetta plan?  

8. Var þessum tíma vel varið?  

9. Bætti þessi tími heilsuna þína að einhverju leyti?  

10.Trúir þú að með því að halda svona áfram getir þú bætt heilsu þína, bæði líkamlega og andlega og þar með aukið lífsgæði þín?  

Svona líður tíminn.  

Eitt er víst að tíminn líður hvort sem þú hefur varið honum á TT námskeiði eða ekki. Nákvæmlega sami tími væri liðinn. Eini munurinn er sá að nú geta flestar ef ekki allar sagt að þær séu betur á sig komnar en fyrir 5 vikum! Það er jákvætt. Verjum þeim tíma sem þarf til að halda okkar besta formi.

Spurningar vikunnar:  

1. Hvað eru margar hitaeiningar í 100 gr af fiski, soðnum eða bökuðum?  

2. Hvað eru margar hitaeiningar í kjúklingabringu með engu skinni?  

3. Hvað eru margar hitaeiningar í einni matskeið af 10% sýrðum rjóma?  

4. Hvað eru margar hitaeiningar í einu sérbökuðu vínarbrauði?  

5. Í hvaða ávaxtasultu er enginn viðbættur sykur? 

Ertu að fara eftir TT matseðlinum?  

Þarna eru frábærar uppskrifir sem bæði þú og aðrir í fjölskyldunni geta notið. Þær eru ekki flóknar, yfirleitt fyrir fjóra og gefa upp fjölda hitaeininga í hverjum skammti.

Rifjum upp 7 daga regluna:  

Samanlagt hitaeiningamagn 7 daga í röð. Þessi regla virkar alla ævi, bæði núna meðan á aðhaldi stendur og einnig þegar þú hefur náð þeim árangri sem þú stefnir að. Mundu að það skiptir ekki öllu hvað þú gerir einn og einn dag, heldur 7 daga í röð. Summa hitaeininga 7 daga í röð stjórnar því hvort þú stendur í stað, léttist, eða þyngist.  

  • Ef þú heldur þér undir 14 þúsund hitaeiningum 7 daga í röð eru mestar líkur á að þú léttist (1,600 – 1,700 hitaeiningar á dag)    
  • Ef þú ferð í 14 – 16 þúsund plús eru mestar líkur á að þú standir í stað (2,000 -2,300 hitaeiningar á dag)  
  • Ef þú ferð í 17-20 þúsund plús eru mestar líkur á að þú þyngist (2,600 – 3,000 hitaeiningar á dag)    

Þú verður sem sagt að vera undir 14 þúsund hitaeiningum samtals eftir 7 daga ef þyngdartap á að eiga sér stað. Það þarf hins vegar ekki alltaf að vera með sama móti. Segjum að þú neytir 3,000 hitaeininga þrjá daga í röð, þá áttu bara 5,000 hitaeiningar eftir fyrir næstu 4 daga til að vera komin í 14,000 hitaeiningar sem er 2,000 hitaeiningar á dag og ætti það að sleppa til að standa í stað þá vikuna.

Það verður mæling eftir tíma á miðvikudaginn. 

Allar að mæta.!!

Allar sem halda áfram eru með 30% afslátt

Jákvæð orka kemur okkur þangað sem við viljum !!

Njóttu þess að koma þér í gott form.

Að vera í líkamlegu góðu formi eru lífsgæði sem þú átt skilið og gerir allt svo miklu skemmtilegra og andlega heilsan er spegilmynd af þeirri líkamlegu.

Lífið er núna,lifum því!

Þín Bára.