Hafðu samband

Heimilisfang: Lágmúli 9, 105 Reykjavík Sími: 581-3730 Netfang: [email protected]

+354-581-3730

[email protected]

Póstur 5- námskeið 3

Póstur 5

Náðirðu markmiðum síðustu viku?

Til hamingju með það! Nú ertu reynslunni ríkari og farin að gera þér grein fyrir hvernig þú stjórnar sjálf þínu holdarfari. Nú er fimmta vikan á þessu námskeiði runnin upp og um að gera að skoða bókhaldið vel.

Svör við spurningum vikunnar:

1. Til að ná tvöföldu TT markmiði fyrir 6 vikur = 3,6 kg.
2. Hafragrautur lækkar blóðfitu og blóðþrýsting.
3. Í hálfri melónu eru u.þ.b. 97 hitaeiningar.
4. Í bláberjum er mikið af andoxunarefnum sem verja líkamann fyrir sjúkdómum og ótímabærri öldrun.
5. Meðalorkuþörf kvenna hér á landi er 2,300 – 2,500 orkueiningar á dag.
6. Til að léttast á 7 dögum þarftu að fara samtals undir 14,000 hitaeiningar.

Staðan í dag.

Förum nú aðeins yfir málin. Hvernig leið tíminn? Var hann langur – stuttur – leiðinlegur –skemmtilegur – erfiður? Var það rétt eða röng ákvörðun að fara á TT námskeið?
1. Náðirðu TT markmiðinu?
2. Mættir þú í tíma 3x í viku?
3. Finnur þú mun á holdafarinu?
4. Sjá aðrir mun á þér?
5. Líður þér betur líkamlega?
6. Líður þér betur andlega? Var gaman?
7. Fannst þér þú vera að fórna einhverju til að standast þetta plan?
8. Var þessum tíma vel varið?
9. Bætti þessi tími heilsuna þína að einhverju leyti?
10.Trúir þú að með því að halda svona áfram getir þú bætt heilsu þína, bæði líkamlega og andlega og þar með aukið lífsgæði þín?

Svona líður tíminn.

Eitt er víst að tíminn líður hvort sem þú hefur varið honum á TT námskeiði eða ekki. Nákvæmlega sami tími væri liðinn. Eini munurinn er sá að nú geta flestar ef ekki allar sagt að þær séu betur á sig komnar en fyrir 5 vikum! Það er jákvætt. Verjum þeim tíma sem þarf til að halda okkar besta formi.

Spurningar vikunnar:

1. Hvað eru margar hitaeiningar í 100 gr af fiski, soðnum, eða bökuðum?
2. Hvað eru margar hitaeiningar í kjúklingabringu með engu skinni?
3. Hvað eru margar hitaeiningar í einni matskeið af 10% sýrðum rjóma?
4. Hvað eru margar hitaeiningar í einu sérbökuðu vínarbrauði?
5. Í hvaða ávaxtasultu er enginn viðbættur sykur?

Ertu að fara eftir TT matseðlinum?

Þarna eru frábærar uppskriftir sem bæði þú og aðrir í fjölskyldunni geta notið. Þær eru ekki flóknar, yfirleitt fyrir fjóra og gefa upp fjölda hitaeininga í hverjum skammti.

Samanlagt hitaeiningamagn 7 daga í röð.

Sjö daga reglan virkar alla ævi, bæði núna meðan á aðhaldi stendur og einnig þegar þú hefur náð þeim árangri sem þú stefnir að. Mundu að það skiptir ekki öllu hvað þú gerir einn og einn dag, heldur 7 daga í röð. Summa hitaeininga 7 daga í röð stjórnar því hvort þú stendur í stað, léttist, eða þyngist.
• Ef þú heldur þér undir 14 þúsund hitaeiningum 7 daga í röð eru mestar líkur á að þú léttist.
  (1,600 – 1,700 hitaeiningar á dag)
• Ef þú ferð í 14 – 16 þúsund plús eru mestar líkur á að þú standir í stað

  (2,000 -2,300 hitaeiningar á  dag)
• Ef þú ferð í 17-20 þúsund plús eru mestar líkur á að þú þyngist 

  (2,600 – 3,000 hitaeiningar á dag)

Þú verður sem sagt að vera undir 14 þúsund hitaeiningum samtals eftir 7 daga ef þyngdartap á að eiga sér stað. Það þarf hins vegar ekki alltaf að vera með sama móti. Segjum að þú neytir 3,000 hitaeininga þrjá daga í röð, þá áttu bara 5,000 hitaeiningar eftir fyrir næstu 4 daga til að vera komin í 14,000 hitaeiningar sem er 2,000 hitaeiningar á dag og ætti það að sleppa til að standa í stað þá vikuna.

Súperstjarnan 

Forustuna núna á þessu námskeiði hefur  Helena í 17:40í  með 4.9kg kg.!

Aldeilis frábær árangur! Til hamingju flotta kona og njóttu þess að fá sjálfa þig til baka!

Og svo kemur heilt stjörnuregn 

  • Björk Óttarsd.        með 19.5 kg
  • Sigríður Jónsd       með  4.5kg
  • Rósa Guðmundsd með  4.4kg
  • Anna Hauksd         með 3.6kg

Til hamingju allar!

Nú er mæling í næstu viku miðvikudaginn 9. júni svo fer TT í pásu eftir þetta námskeið og hefst aftur í ágúst.

Síðasta námskeið fyrir frí er Stutt og Strangt 14. júni – 2. júli.

Tímar 3xí viku, í 3 vikur, Skoðið tímatöflu og skráið ykkur í afgreiðslu.

Þetta verður loka spretturinn fyrir frí 🙂

Kraftur -gleði og gaman!!

Lífið er núna – njótið þess!

Ykkar Bára